Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Gott mál, hér er annað gott mál...

...sem Hringurinn gæti styrkt Barnaspítalann í að innleiða og myndi gera afar mikið gagn, og byrja þá á umhverfi þeirra barna sem stendur mest ógn af sýkingum ýmsum.

En það virðist ríkja nokkuð almenn fáfræði um nýjustu vísindi og þekkingu í stríðinu við hinar þrálátu sjúkrahússýkingar, meira að segja hjá heibrigðisyfirvöldum og sóttvarnalækni sem virðist hreinlega ekki fylgjast sérlega vel með, en þær eru samt sem áður gríðarlega dýrt og stigvaxandi vandamál um allan heim og því mikilvægt að huga að einföldum lausnum sem draga verulegu úr þessari áhættu og kosta ekki mikið, en gera sjúkrahús að mun öruggari stöðum að heimsækja, "payback" tíminn af því að útbúa skurðstofur og sjúkrahús með þessum hætti er afar stuttur, nokkrir mánuðir sem gerist nú ekki mikið betra.

Það væru afar dýr og heimskuleg afglöp að hafa nýja hátæknispítalann ekki útbúinn samkæmt nýjustu þekkingu í þessum grafalvarlega málaflokki og þá erum við ekki bara að tala um beinan kostnað heilbrigðiskerfisins, heldur líka þá þjáningu, vinnutap og jafnvel óþarfann dauða þeirra sem eru svo óheppnir að lenda í því að fá slíkar sýkingar á spítulum. Vandinn er hraðvaxandi en til eru einfaldar lausnir sem minnka hættuna verulega mikið og borga sig mjög hratt upp. Ef að sóttvarnarlæknir er ekki á tánum og fylgist ekki nógu vel með þarf hann að bæta sig snarlega eða teljast vanhæfur ella, megum ekki við neinu fúski í þessum málum, hátæknisjúkrahúsið verður að standa undir nafni sem slíkt og vera í farabroddi.


mbl.is Afhenda barnaspítalanum 110 milljónir króna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslendingar eiga ekki að borga skuldir glæpamanna frekar en borgarar annarra landa.

Nigel Farage, þingmaður Evrópusambandsins og fyrrverandi leiðtogi Independant Party á Bretlandi veitir í þessu viðtali góða innsýn í hugsunarganginn og spillinguna hjá Evrópusambandaninu, skuggalegum markmiðum og vinnubrögðum, Íslendingar hafa ekkert í þann viðurstyggilega forarpytt að sækja.
mbl.is Sama aðferð og í þorskastríðunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband