Færsluflokkur: Menntun og skóli

Gott mál, hér er annað gott mál...

...sem Hringurinn gæti styrkt Barnaspítalann í að innleiða og myndi gera afar mikið gagn, og byrja þá á umhverfi þeirra barna sem stendur mest ógn af sýkingum ýmsum.

En það virðist ríkja nokkuð almenn fáfræði um nýjustu vísindi og þekkingu í stríðinu við hinar þrálátu sjúkrahússýkingar, meira að segja hjá heibrigðisyfirvöldum og sóttvarnalækni sem virðist hreinlega ekki fylgjast sérlega vel með, en þær eru samt sem áður gríðarlega dýrt og stigvaxandi vandamál um allan heim og því mikilvægt að huga að einföldum lausnum sem draga verulegu úr þessari áhættu og kosta ekki mikið, en gera sjúkrahús að mun öruggari stöðum að heimsækja, "payback" tíminn af því að útbúa skurðstofur og sjúkrahús með þessum hætti er afar stuttur, nokkrir mánuðir sem gerist nú ekki mikið betra.

Það væru afar dýr og heimskuleg afglöp að hafa nýja hátæknispítalann ekki útbúinn samkæmt nýjustu þekkingu í þessum grafalvarlega málaflokki og þá erum við ekki bara að tala um beinan kostnað heilbrigðiskerfisins, heldur líka þá þjáningu, vinnutap og jafnvel óþarfann dauða þeirra sem eru svo óheppnir að lenda í því að fá slíkar sýkingar á spítulum. Vandinn er hraðvaxandi en til eru einfaldar lausnir sem minnka hættuna verulega mikið og borga sig mjög hratt upp. Ef að sóttvarnarlæknir er ekki á tánum og fylgist ekki nógu vel með þarf hann að bæta sig snarlega eða teljast vanhæfur ella, megum ekki við neinu fúski í þessum málum, hátæknisjúkrahúsið verður að standa undir nafni sem slíkt og vera í farabroddi.


mbl.is Afhenda barnaspítalanum 110 milljónir króna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Plasmi, rafmagnaður heimur, rafmögnuð sól og rafmagnaðar stjörnur?

Nýjustu uppgvötanir í stjarneðlisfræði og plasmavísundum ögra viðteknum hugmyndum um Mikla Hvell og heimsmynd okkar og margt sem bendir til að menn hafi vaðið villu og svíma, ef að þessar byltingarkenndu uppgvötanir og kenningar standast (sem svo sannarlega virðist ekki ólíklegt) fara kenningarnar um Mikla Hvell á bekk með eldri hugmyndum eins og um að Jörðin væri flöt. Verður allavegana fróðlegt að fylgjast með framvindu mála og nýrri vitneskju sem hleðst inn með auknum hraða. Skemmtilegt líka hvað þessar kenningar ríma vel við goðsögur fyrri menningarheima og þær fara að meika sens. En eflaust verður nokkur tregða hjá vísindasamfélaginu að meðtaka þessar kenningar, rétt eins og vísindasamfélagið barðist af alefli gegn þeim geggjuðu kenningum að Jörðin væri alls ekki flöt á sínum tíma.

THUNDERBOLTS OF THE GODS


mbl.is Brottför Discovery seinkað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband